BHM Fjármálafærni OHR Bókarar

OHR Bókarar - Skattskil rekstraraðila

Rekstur

Next start date 27-04-2027 > View more start dates
Price 65.000kr.
Location Staðnám

Um námskeiðið

Skattframtal fyrirtækis gert og notast verður við skattframtöl lögaðila RSK 1.04.

Að búa yfir þekkingu til að geta fyllt út skattframtal fyrir aðila í rekstri nýtist vel í atvinnulífinu. Á þessu námskeiði læra nemendur meðal annars um afstemmingu virðisaukaskatts, útleiðslu skattstofns og hvernig framtalið er fyllt út á grundvelli ársreiknings.  

Kennslan 

Notast er við eitt verkefni þar sem reynir á þau atriði sem hafa verið til umfjöllunar í námskeiðinu og farið yfir hvernig framtal er fyllt út.
Þátttakendur fá aðgang að kennslukerfi HR þar sem allt kennsluefni finnst

Fyrir hverja er námskeiðið

Þetta námskeið hentar þeim sem starfa við framtalsgerð fyrir fyrirtæki og þá sem eru óvanir á því sviði.

Skipulagið

Námskeiðið er 8 klst og kennt í tveimur 4 klst lotum.

  • Þriðjudaginn 28. apríl 2026 - kl 13:00-17:00
  • Miðvikudaginn 29. apríl 2026 - kl 13:00-17:00

Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.

Hagnýtar upplýsingar

Félagsmenn Félags Bókhaldsstofa (FBO) og Félags viðurkenndra bókara (FVB) fá 10% afslátt á námskeiðið. Félagsmenn FBO og FVB eru vinsamlega beðnir um að senda tölvupóst á verkefnastjóra námskeiðsins áður en námskeiðið hefst til að fá þessi sérkjör og afsláttarkóða.

Námskeiðið veitir samtals 15 endurmenntunareiningar hjá bæði FBO og FVB.        

Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið

Verkefnastjóri

Linda Vilhjálmsdóttir

lindav@ru.is 

599 6341